Langar þig að ganga til liðs við mömmu?

Í lok nóvember verður opnað fyrir gátt þar sem hægt verður að sækja um störf hjá félaginu. Störfin verða auglýst betur þegar nær dregur.

Meðal starfa sem auglýst verða eru forstöðumenn flugumsjónar, tölvudeildar, tekjustýringar og markaðsdeildar. Einnig verður auglýst eftir fjölda flugliða til þess að manna og þjónusta vélarnar okkar.

Öll kyn eru hvött til þess að sækja um laus störf.

Fyrir frekari upplýsingar má senda tölvupóst á starf@momair.is.

Fáðu nýjustu fréttir beint frá mömmu með því að skrá þig á póstlistann okkar.