fbpx

Bókunarvélin okkar

Bókunarvélin okkar mun fara í loftið mánudaginn 9. nóvember, 2020. Hægt verður að bóka flug frá og með 1. febrúar, 2021.

Flugfarþegar sem bóka hjá okkur hafa valmöguleika á því að afbóka flugið sitt allt að 7 dögum fyrir flug án endurgjalds.

ATH – Ekki er rukkað fyrirfram fyrir bókanir.

Bókunarvélin byggir á háþróuðu kerfi sem kallast HFx, sem stendur fyrir Hyper Flexible Transcendance. Vélin er háþróuð og getur auðveldlega tæklað hraðar breytingar með litlum fyrirvara, þannig setjum við valdið í hönd viðskiptavina okkar sem eru fullfærir um að ráðstafa ferðalögum sínum.

Þú stýrir kostnaðinum og gerir breytingar án þess að greiða sérstaklega fyrir það.

Langar þig í frímiða?

Við ætlum að gefa fullt af frímiðum! Fyrstu tvær bókanir í hverju flugi verða frímiðar. Eina sem þú þarft að gera er að velja flug, áfangastað, dagsetningu og haka við “frímiðar” í leitarvélinni okkar. Hægt er að bóka tvo frímiða í einu, en aðeins einn frímiði fer á hvern einstakling (ekki er hægt að bóka marga frímiða fyrir sama aðila).

Einnig stefnum við að því að draga út heppinn einstakling, sem fær frítt flug í heilt ár fyrir sjálfan sig plús einn! Skráðu þig á póstlistann til þess að komast í pottinn.

Appið er væntanlegt í desember, 2020.