fbpx

Álag á netþjóna

Vefsvæði MOM Air sem opnað var í hádeginu réð ekki við álagið þegar á reyndi og gekk erfiðlega að komast inn á hana fram eftir degi. Á milli 500 og 600 manns fóru inn á síðuna á hverri sekúndu skömmu eftir að hún var opnuð og virðast netþjónar hennar ekki hafa ráðið við umferðina. Verið er að uppfæra síðuna til að koma til móts við aukið álag.