fbpx

Mömmufuglar

Mömmufuglarnir okkar eru sex talsins og eru allar af gerðinni A320neo, Airbus.

Hreiðraðu um þig í mömmufangi og láttu mömmu stjana við þig í þessum umhverfisvæna flugkosti. Þotuhreyflar vélanna eyða töluvert minna eldsneiti en aðrir íslenskir flugkostir, og þar með er kolefnisspor hvers sætis margfallt minna.

Framsækni í faraldri hefur tryggt okkur hagkvæma langtímasamninga við erlenda aðila um vélakost okkar, með möguleika á að bæta við bæta fleiri vélum á næsta ári.

Félagið stefnir að því að öðlast flugreksrarleyfi á þeim forsendum að það sinni fyrstu vikurnar leiguverkefni fyrir stórt erlent flugfélag.

Stefnt er að því að flytja 90 þúsund farþega árið 2021, og 450 þúsund 2022.

,,Móðir dylur barnsins bresti.”