Núna um helgina hafa fjölmiðlar um allan heim fjallað um flugfélagið MOM air. Því hefur verið gefið byr undir báða vængi að um sé að ræða gjörning, eða grín af einhverju tagi.
Category Archives: Fréttir
Vefsvæði MOM Air sem opnað var í hádeginu réð ekki við álagið þegar á reyndi og gekk erfiðlega að komast inn á hana fram eftir degi. Á milli 500 og 600 manns fóru inn á síðuna á hverri sekúndu skömmu eftir að hún var opnuð og virðast netþjónar hennar ekki hafa ráðið við umferðina.
Verið er að uppfæra síðuna til að koma til móts við aukið álag.
Stefnt er að því að halda blaðamanna- og kynningarfund þann 11. nóvember næstkomandi, klukkan 10:00. Fundinum verður varpað í beinni útsendingu bæði á samfélagsmiðlum og heimasíðu MOM air.